Komin dagsetning á útflutninginn! Þann tuttugasta og þriðja september hypja ég mig loksins af landi brott með allt mitt hafurtask. 4 dögum seinna byrjar svo skólinn. Nú er allt að gerast í búsetumálum svo vonandi reddast það fljótlega og ég eignast heimili. Eða að minnsta kosti adressu sem ég get gefið upp á ferðatöskunum. Talandi um töskur! Ég hef ákveðið að allt sem ég ekki tek með mér af fötum og þess háttar losi ég mig við. Ef ég nota fötin ekki núna er frekar hæpið að ég geri það eftir 2 ár, right? Þannig að í kveðjupartýinu verður eitt gott fataherbergi sem fólk getur farið og gramsað í og eignað sér það sem fer þeim betur en mér. Þannig losna ég við yfirvigt og þið eignist ný föt. Tara!
föstudagur, ágúst 19, 2005
Previous Posts
- Ég horfði á heimildarmynd um skírlífi í gærkvöldi....
- Hvað má???Góður vinur kom að máli við mig stuttu á...
- Jæja þá! Þetta var nú aldeilis fróðleg, skemmtileg...
- Síðasti vinnudagurinn í sumarvinnunni... Ég á efti...
- Ég á afmæli í dag...Til hamingju með afmælið kæra ...
- Systir hennar Önnu bloggarVerslunarmannahelgin kom...
- Blonde, single female looking for a room in Glasgo...
- The wonders of lifeStærstan hluta sumars er veðrið...
- Ég gerðist svo fræg að fara í útilegu um helgina. ...
- Fór á Glaumbar sl. þriðjudagskvöld til að horfa á ...

<< Home