mánudagur, maí 19, 2008

Heyrðu já!

Mér leiðist Heyrðu-fólkið. Ég nota reyndar H-orðið aðeins of mikið en ekkert í líkingu við sumt fólk. Ég vann eitt sinn með einni Heyrðu-stelpu, sem sendi það meira að segja í smsum. Heyrðu, ég svaf yfir mig! Er á leiðinni! Botninum var þó náð áðan. Ég fór í pump tíma og kennarinn byrjaði allar sínar setningar á Heyrðu. Allar sínar setningar. Heyrðu, við byrjum á upphitun! Heyrðu, nú er það bakið! Heyrðu, þá eru bara teygjur eftir! Ég hef ekki hugmynd um hvað ég var að lyfta þungu í lok tímans, ég var orðin svo pirruð að mig langaði helst að labba út. Steininn tók þó úr í magaæfingum þegar hún sagði: Svo lyftum við hægri fótnum! Ég hugsaði með mér að nú væri ég eitthvað að misskilja, konan gat ekki hafa sagt þetta. Svo ég sneri mér við með eyrun sperrt, og hvað kom? Heyrðu, og nú lyftum við vinstri fótnum!
Manni hefnist fyrir að kaupa ódýrasta líkamsræktarkortið.