sunnudagur, maí 25, 2008

Ég á mér eina uppáhalds rakspíralykt. Hún hefur alltaf þau áhrif á mig að ég hreinlega svíf þegar ég finn hana. Írinn minn fékk sér hana eftir að hafa séð hvað ég er heilluð af henni, og meira að segja eftir að í ljós kom hvað hann er mikill eðal kúkalabbi er lyktin að skila sínu. Lyktin hefur semsagt ekki tengst honum skilyrtum böndum heldur lifir enn sjálfstæðu lífi í þefstöðvunum. Hjúkk! Gekk framhjá manni á Kaffibarnum áðan sem bar þessa lykt og ég þurfti að halda mér í stigahandrið með báðum til að stöðva ósjálfráðu viðbrögðin mín. Sem vildu stökkva í fangið á honum og knúsa hann vikulangt! Sem betur fer nota ekki margir gaurar þessa lykt...

Ljómandi kvöld að baki og ég bara merkilega skynsöm og edrú miðað við innbyrgt áfengismagn. Eva mixaði kokteila af alkunnri snilld og dansinn var stiginn grimmt í Vesturbænum (myndir fljótlega). Eurovision úrslitin voru nú skandall en okkar fólk stóð sig þvílíkt vel. Það var gæsahúð á öllum útlimum í stofunni þegar þau sungu. Við fórum svo upp í bæ með Danni sinn og á Ólíver þar sem plötusnúðarnir reyndust tregari en meðal rottur. Hversu flókið er annars að átta sig á eftirfarandi: Spila lag sem allir þekkja og gólfið fyllist. Spila teknó lag sem ekki er hægt að syngja með og varla dansa við og gólfið tæmist. Þetta virtist vefjast eitthvað fyrir þeim blessuðum, en við tókum nú góðan snúning þegar færi gafst. Helga ætlaði svo að fara að kenna mér höstldans þegar ég hitti mann sem ég þurfti að eiga orð við, svo höstlið verður að bíða betri tíma ;o)

Annars er fátt títt úr Hlíð. Ég fór í atvinnuviðtal í morgun og fannst ég freklega blekkt þegar á hólminn var komið. Það er kannski bara ég, en er ekki einhver smá munur á því að svara í síma og prenta út reikninga, og að aðstoða við kjálkaskurðaðgerðir? Ég er kannski bara með eitthvað pjatt... En starfið mitt er alveg að koma, ég finn það á mér! Svo fer ég bara í söngtima til Davids, sem spurði mig um daginn hvort ástæðan fyrir því að ég þurfti að fara á bakspítalann í desember sl hafi verið öll aukaþyngdin sem ég var með?!?! Ehm.. Ég veit ekki hvort hann er að rugla mér saman við einhverja aðra eða hvað, ég kunni allavega ekki við að segja honum að ég er nákvæmlega eins í dag og ég var þá! Fínt að fá hrós fyrir að vera orðinn svona svakalega mjór hahaha

Jæja, best að fara að sofa í hausinn á sér! Nágrannarnir á móti byrjuðu að slá garðinn sinn klukkan hálf tíu í morgun og ég geri ekki ráð fyrir aukinni tillitssemi í fyrramálið.

XX