föstudagur, apríl 22, 2005

Gleðilegt sumar!

Ég fagnaði sumarkomunni með enn einni vel heppnaðri sýningu af Cosí. Hausinn á mér er að verða svo stór af öllu hrósinu að ég kemst varla í húfuna mína lengur. En það er allt í lagi, ég þarf enga húfu því það er komið sumar! Viðburðaríkur vetur að baki og vonandi viðburðaríkt sumar framundan. Tíminn er sko alveg búinn að fljúga áfram undanfarna mánuði en nú held ég að það sé kominn tími til að staldra aðeins við og hlusta á fuglasönginn. Helgin mín mun allavega fara í það. Ef þið sjáið húfulaust kvenbarn með sperrt eyru á gangi um græn svæði borgarinnar er ykkur velkomið að rölta með.