miðvikudagur, júlí 16, 2008

Kján-Anna

Er í því að gera kjánalega hluti þessa dagana!

Í Víkinni fögru ákvað ég að fara út að hlaupa sl föstudagsmorgun. Það var úði og rok svo ég dúðaði mig vel með húfu og trefil, með hettuna yfir hausinn og háa tónlist í eyrunum. Setti mér metnaðarfullt markmið og lagði í hann. Var komin nokkuð áleiðar þegar eitthvað straukst við hausinn á mér! Ég stoppaði og leit upp, þar sem 20-30 bandbrjálaðar kríur sveimuðu yfir mér. Þær öskruðu og görguðu og dýfðu sér hvað eftir annað í áttina að mér. Ég trylltist úr hræðslu, sneri við á punktinum og spretti til baka eins og fætur toguðu, bogin í baki og veifandi húfunni yfir hausnum á mér. Nokkrir bílar áttu leið hjá og ég fann hvernig farþegarnir hlógu að mér, augljósri utanbæjartúttunni.
Þetta var kjánalegt.

Í fyrradag fór ég, að vanda, beint úr ræktinni í vinnuna. Ég pakka kvöldið áður fötum og dóti í töskuna og spái mismikið í hverju ég ætla að klæðast daginn eftir. Kvöldið áður hafði ég greinilega átt von á sól og sumri því ég pakkaði stuttu gallapilsi. Þegar ég var komin í það og sest á hjólið áttaði ég mig á því að þetta hafði ekki verið heimsins besta val. Leiðin í og úr vinnunni liggur um Miklubraut og Kringlumýrabraut um klukkan 9 og klukkan 4. Það er því óhætt að segja að það hafi ófáir vegfarendur verið svo heppnir að sjá innanlæri mín og afturenda nokkuð vel, jafnvel líka glitta í hvítar nærur undir svörtum sokkabuxum ef þeir voru (ó)heppnir.
Þetta var líka kjánalegt.

Undanfarna daga hef ég haft miklar áhyggjur af því að vinur minn sé fúll út í mig. Ég segi auðvitað allskonar vitleysu og meina ekki helminginn af því sem ég bulla, en ég reyni nú eins og ég get að særa ekki fólk, sérstaklega ekki þá sem mér þykir vænt um. Maðurinn er fullorðinn og fullfær um að tjá sig í mæltu máli svo ég veit ekki hvað ég er að tapa svefni yfir því að hann gæti verið fúll út í mig.
Það er svolítið kjánalegt.

Kjánalegast af öllu er samt að bakið á mér er í hönk og ég veit ekki af hverju!