Memory Lane
Eftir síðasta Idol-þátt hef ég heldur betur verið að rifja upp liðnar stundir. Þar var nefnilega fyrsti 'alvöru' kærastinn minn að keppa. Hann stóð sig nú ágætlega svosem en gelgjustælarnir hans hafa vakið mikla athygli, það er ótrúlegasta fólk að tala um þá! Gaman að sjá fólk breytast svona mikið að utan en lítið að innan, alveg sömu taktarnir hjá honum og í den. Hann hefur nú samt alltaf sungið vel pilturinn, enda hefur hann fengið næga æfingu... Við vorum að dúlla okkur eitthvað í nokkra mánuði minnir mig (8 ár síðan sko, maður getur ekki haft þetta allt á hreinu) og okkar fundir fóru yfirleitt þannig að fram að við sátum í herberginu hans og hann spilaði á gítar og söng á meðan ég hlustaði mis-áhugasöm á. Svo kysstumst við og héldumst í hendur, ótrúlega sætt... og svo benti hann mér á alla gallana mína -ég man það sko ennþá! Anna...þú ert með skakkan munn! Anna...þú ert með samvaxnar augabrúnir! Anna...þú ert með stórt nef! Anna...þú ert með bumbu! Það sem maður lét bjóða sér þegar maður var ungur og vitlaus!!! Og eins og glöggir áhorfendur hafa tekið eftir var þetta enginn Arnar Grant sem var að gagnrýna mig ;-) En hann er góður strákur, maður lifir og lærir (vonandi). Og mér skilst að hann eigi bæði ísskáp og konu í dag svo það er enginn skaði skeður.

<< Home