föstudagur, nóvember 26, 2004

Finalmente

Loksins, loksins er ferðalagið komið á hreint! Og ekki mínútu of snemma, þar sem ég fer af stað á morgun... Hinir háu skosku herrar drulluðust loks til að gefa mér dagsetningu í gær og það kollvarpaði öllum fyrri plönum. Nú fer ég tvisvar út í stað þess að fara einu sinni og vera lengi lengi. Það er ódýrara heldur en að hanga í heila viku á hóteli í London og gera ekkert nema versla og éta. Hins vegar veldur það því að ég missi af jólatónleikunum sem ég er búin að æfa mig þvílíkt fyrir og ég þarf að fara í sjúkrapróf í ítölskunni. Þegar ég kem heim eru svo tveir dagar í óperusögupróf og við skulum biðja til þrumuguðarins Þórs að ítölskuprófið verði ekki á sama degi. En hvern er ég að plata? Þetta er ég... auðvitað verður það á sama degi! En ég semsagt fer út á morgun og kem heim á þriðjudag, fer svo aftur út á mánudag og kem heim á sunnudag. Facile, vero?