þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Þar sem ég er nú svolítil nöldurkelling inn við beinið verð ég að fá að kvarta smá og kveina. Í dag er það bílastæðið við Sporthúsið sem fer í taugarnar á mér. Reyndar ekki bara í dag, heldur alltaf þegar ég fer þangað...sérstaklega á kvöldin. Það er sem sagt bara óupplýstur malarvöllur, mjög skemmtilegt á dimmum kvöldum. Ég bíð alltaf bara eftir að einhver stökkvi á mig og komi fram vilja sínum við mig (hver svo sem hann kynni að vera; ræna mig, ræna mér, nauðga mér... allavega ólíklegt að hann vilji stela bílunum hans Jóa hahaha). Og ég er yfirleitt svo búin á því eftir combattið að ég myndi ekki geta lumbrað mikið á ódæðismanninum.
Svo er eins og fólk kunni ekki að leggja þar sem vantar línur á götuna. Ótrúlega fyndið hvernig bílarnir eru smám saman í skakkari röð þar til í enda stæðisins þar sem þeir eru næstum alveg á hlið miðað við þá fremstu. Æ, þetta er ýkt ruglingslegt...farið bara í smá rúnt og tékkið á þessu ;-) Og ef þið sjáið glæpamann í felum á bak við skakkan bíl vinsamlegast keyrið á hann.