Ég varð veik í öxlinni minni um helgina, þeirri vinstri ef einhver hefur áhuga á að vita það. Ferlega sárt alveg sama þó ég hreyfði hana ekki neitt og ég gat lítið sofið og bara leiðindi.is. Svo ég fór á uppáhaldsstaðinn minn þar sem ég fæ alltaf svo rosalega góða þjónustu, eða þannig... Læknavaktina. Þar var nú reyndar bara óvenjulega indæll læknir sem skoðaði mig hátt og lágt og kvað svo upp þann dóm að vöðvafesta í öxl væri eitthvað mis. Lausnin við því var að sprauta deyfiefni í festuna. Það var ekkert sérstaklega þægilegt og svona hálftíma eftir að ég kom heim var ég að drepast í öxlinni, tuttugu sinnum verri en áður... Ég þraukaði þó fram á kvöld og fór svo aftur á Læknavaktina (og borgaði aftur 1400 krónur) og hitti aftur sama kall og hann sprautaði mig aftur. En í þetta sinn sagði hann að þetta hlyti að vera sinaslíður í öxlinni og hann sprautaði deyfiefni í það. Allt í lagi. Ég var bara áfram alveg að drepast svo hann sagði mér að kaupa íbúfen og parkódín og tala við heimilslækni daginn eftir. Ég dópaði mig upp og svaf lítið svo ég var bara rugluð.is í gær þegar ég hitti hann Stefán lækninn minn. Hann tók af mér blóðprufur og allskyns dótarí og sagði svo að ég væri með frosna öxl (eða frozenius schulderes fyrir læknanemana). Lækningin við því er að sprauta sterum í öxlina en þar sem ég er svo nýbúin að fá tvær sprautur í öxlina verður það að bíða nokkra daga.
Niðurstaðan er sem sagt að þetta kostaði mig 4300 krónur, 3 ferðir til læknis, tvær óþægilegar sprautur, að vera á brjóstahaldaranum fyrir framan gamla ókunna kalla og mér er ennþá þokkalega mikið illt í f-ing öxlinni!!!
Niðurstaðan er sem sagt að þetta kostaði mig 4300 krónur, 3 ferðir til læknis, tvær óþægilegar sprautur, að vera á brjóstahaldaranum fyrir framan gamla ókunna kalla og mér er ennþá þokkalega mikið illt í f-ing öxlinni!!!

<< Home