Kroppurinn minn vaknaði í gær og hugsaði hmmm... Ég virðist vera að lyfta lóðum (ég er sko alltaf vöknuð löngu á undan kroppinum), athyglisvert. Nú á ég að vera sterkur, allt í lagi þá geri ég það.
Stuttu síðar sama dag hugsaði hann: Nú á ég víst að sitja alveg kyrr lengi lengi, það eina sem hreyfist er hægri höndin. Þetta er nú frekar leiðinlegt en allt í lagi. Aðeins seinna áttaði hann sig á því að hann átti að labba... hann vissi ekki af hverju en ákvað að ganga með.
Ekki leið á löngu þar til miklar tilfæringar urðu í koki, hálsi, kjálka, þindarsvæði, magavöðvum og grindarbotni. Þetta fannst kroppinum mínum undarlegt athæfi en lét sig þó hafa þetta rugl í rúmlega klukkustund.
Eftir þessar undarlegu tilfæringar tók aftur við einhæf rassseta með einstaka handhreyfingum, mismunandi þó.
Þegar þreyta tók að síga á kroppinn og hann var viss um að hann færi bráðlega að fá vel verðskuldaða hvíld komst hann að því að fjörið var rétt að byrja. Honum var skellt í hinar furðulegustu stellingar; teygjur og beygjur, fettur og brettur og jafnvægisæfingar sem hann hafði aldrei upplifað áður... Þessu fylgdi ekki sú sérstæða vellíðunartilfinning sem iðulega fylgdi svona undarlegum pósisjónum, heldur bara enn meiri þreyta í alla vöðva. Eftir þennan hamagang lagðist kroppurinn í heitan vökva dágóða stund og svo fékk hann loksins að hvílast.... lengi lengi.
Þegar hann vaknaði daginn eftir var hann farinn að slást við ímyndaðan andstæðing og hreint út sagt berja hann í klessu! Þetta var nú einum of mikið af því góða fyrir kroppinn minn og hann fékk bara nóg.
Ef þið rekist á hann á förnum vegi, segið honum að ég sakni hans og vilji fá hann aftur. Ég lofa að vera góð við hann...

<< Home