laugardagur, september 13, 2003

Jæja jæja. Þá eru tónleikarnir búnir og gengu bara ágætlega held ég. Þó svo að ég persónulega hafi gert meira út á sönggleði en sönggæði. Átti heila 5 áheyrendur í salnum, þar af tvo óvænta og einn sem ég blekkti til að mæta. Ég er alveg með samviskubit :-( Fékk blomster og kager fyrir svo það var nú ekkert slor. Svo er það víst teiti í kvöld í tilefni dagsins. Og hvað er betra til að koma sér í partígírinn en smá svona?