sunnudagur, september 07, 2003

Róleghelgi.is því miður. Hefði alveg verið til í smá tjútt en nennti ekki að búa það til sjálf og það bauð mér enginn. Sniff sniff... Horfði á Minority Report á föstudagskvöldið og fannst hún bara nokkuð góð. Krúsinn er náttlega alltaf sætur og plottið bara nokkuð gott. Eftir að hafa lært og lært á laugardaginn fór ég á Leikinn! Mjög mjög gaman, ekkert smá spennandi leikur. Mikið klappað og mikið stappað, stokkið á fætur og andköf tekin. Var ekki sátt við úrslitin, hefði viljað sjá eitt mark. En áfram Ísland! Vonandi vinnum við Vaterland líka úti :-) Svo bara rolighed og studering og musiklavelse og telefonprostitution og festoprydning. Hér var nefnilega Kæru Sálar partý á föstudagskvöldið og svaka stemmning, mamma og kollegarnir alveg að tapa sér í rauðvínsdrykkju og cognitive therapy umræðu. Síðasti gestur fór kl.5! Hversu dapurt er það að mamma toppi mig í tjúttinu??? Hversu lélegur áhyggjulausstúdentaðlifabestuárævisinnar er ég eiginlega??? Svör óskast EKKI.