Önnu líður eins og kjána 1.hluti (Anna feels like a fool Part I)
Hér er ég, komin í fyrstiskóladagurinnfötin (sem eru ekki sömu föt og égvinnástaðþarsemerslefaðmikiðámigfötin), búin að pakka niður bókum og pennaveski, vatnsbrúsa og post-it miðum, tilbúin í slaginn við fyrsta háskólafyrirlesturinn minn síðan í desember 2002. Þar sem ég í spenningi mínum var heldur fljótari að hafa mig til en ég bjóst við ákvað ég að kíkja örstutt á netið, tékka á stöðu mála sjáði til. Og viti menn! Þar stendur tilkynning frá kennara fagsins Velferð barna - barnavernd um að tíminn í dag falli niður! Og því engin ástæða fyrir mig til að fara í skólann fyrr en klukkan 13!!! Og ég sem var búin að vakna snemma og greiða mér fínt og raða í töskuna mína og velja göngutónlist og allt! Glatað.is

<< Home