Óléttudagurinn
Klukkan 08:30 Byrjaði að lesa um þroska fósturs í móðurkviði, tilfinningar móður og fleiri í þeim dúr fyrir Þroskasálfræðina.
Klukkan 10:30 Hitti Svenna frænda sem tilkynnti mér það að hann verður pabbi í febrúar. Svenni frændi minn sem er jafngamall mér og eignaðist loksins kærustu og gerði það bara svona líka rosalega almennilega. Spjallaði við hann og Auði frænku (ættarmót í Odda) í tvo tíma.
Klukkan 13:10 Tími í Þroskasálfræði hefst. Þar er mikið fjallað um óléttur og ungabörn. Beint fyrir framan mig situr ólétt kona sem ljómar allan hringinn.
Klukkan 15:30 Ég fæ símtal frá Guðbjörgu og kemst að því að hún eignaðist kríli um morguninn. Hún ljómar í gegnum símann.
Klukkan 19:45 Ég fer í sturtu í Baðhúsinu eftir bodycombattíma og í sturtuna hópast konur úr óléttuleikfimi.
Eftir þennan svaðalega óléttudag voru hormónarnir mínir komnir á svo mikið flug að þeir voru eiginlega bara horfnir. Flognir burt í land ungbarnagráts og bleyjuskipta, ógleði og slits, loðinna maga og andvökunátta. Mig langar að vera með!!!

<< Home