Lexía dagsins er:
Eftir heilan dag af mígreni (lesist: sársauka, svefni og verkjalyfjabryðjeríi) er ekki snjallt að mæta í bodycombat klukkan 06:40 morguninn eftir. Það getur orsakað svima, ógleði, hjartsláttartruflanir og þrengt sjóndeildarhringinn smám saman þar til allt verður svart. Þessar hvimleiðu truflanir geta svo leitt af sér að tíminn verði stöðvaður og að tuttugu sveittar konur standi í hring í kring um mann þar sem maður liggur á gólfinu. Það getur aftur leitt af sér mar á sjálfstrausti og dregið úr löngun til að mæta aftur í tímann.

<< Home