þriðjudagur, september 16, 2003

Þvílíkur dagur!!!
Svefnlausari en allt, enda fór ég að sofa einhverntíma seint og var vakin á grimmilegan hátt rúmlega fimm. Já, ég segi það og skrifa. Rúmlega fimm. Af hverju? Nú, ég var að keyra á flugvöllinn. Og er ég þá núna stödd í fjarlægu ævintýralandi þar sem sólin skín og kokteilarnir fljóta? O nei, ég er nú bara heima í Hlíð. Ég var nefnilega bara að keyra Jóa sem ákvað að fara til Skotanna sinna í rúmar þrjár vikur og skilja mig bara eftir hér. Aleina. Skammarlegt athæfi. Svo ekki sé meira sagt. Alveg glatað.
Og þegar ég kom heim og ætlaði að hafa mig til fyrir tómstundafræðitímann, sem að þessu sinni fór fram fyrir framan ÍTRhúsið og fól í sér að læra hópefli (lesist: skrýtnir leikir sem eiga að miða að því að fólk kynnist og treysti hverju öðru), steinsofnaði ég yfir Fréttablaðinu og vaknaði skömmu síðar sama dag með mígreni. Jippí!!! Svo ég fór bara inn í rúm að sofa. Og missti af hópeflinu! Svo nú er ég utan við hópin, alein og yfirgefin og kann ekkert að kynnast fólki ;-)
Nú er ég að reyna að læra og það gengur misvel því hávaðinn í tölvunni er alveg að bora sér leið inn í hausinn á mér. Og ég hef ekki einu sinni Jóa til að koma með knús og félagsskap. Hnuss! Jájá ég vorkenni mér voðalega mikið og mér finnst ég bara alveg eiga rétt á því.
Hins vegar hlakka ég til föstudagsins en þá verður haldið V-V Idol partý. Það verður geðveikt, ég get ekki beðið!!!