fimmtudagur, október 02, 2003

Ég bara nenni aldrei að blogga núna! Nenni reyndar engu sem tengist því að lesa eða skrifa... Vil bara syngja og vera í ræktinni, það finnst mér skemmtilegt. Nú er verið að hlaða á mig verkefnum í hinum ýmsu fögum og mis-skemmtilegar vikur framundan... Hlakka sérstaklega til þeirrar þar sem eru tvennir tónleikar og þrjár ritgerðir sem þarf að skila, 30%, 30% og 20%. 70% ritgerðin er svo stuttu seinna. Það er svo gaman að vera í háskólanámi að það er engu lagi líkt! En ein vika sem ég hlakka í alvörunni til (án votts af kaldhæðni) er næsta vika. Þá kemur Jói heim :-)