föstudagur, október 17, 2003

Og Bredduna fyrir lægstu bloggtíðni á Íslandi hlýtur........ (drumroll) ........ GOGGUR!!!!!! .......(ungfrú Ísland lagið)........
Til hamingju Goggur, þú átt þetta sannarlega skilið!
Já hérna vá maður ég bara shit ég veit bara ekkert hvað ég á að segja hérna vá ókei takk fyrir þessa viðurkenningu, ég hélt ekki að ég væri svona léleg að blogga en hérna shit takk fyrir, ég er alveg í skýjunum yfir þessu ég átti engan veginn von á þessum verðlaunum hér í dag, hérna sko ég hélt ég væri bara hér til að sitja í sætum stjarnanna þegar þær skreppa á klóið haha hmmm en hérna bara takk fyrir kærlega, hérna sko ég verð víst líka að þakka háskóla íslands og þarna nýja söngskólanum fyrir að láta mig hafa nóg að gera þú veist svo ég hef aldrei tíma til að bulla í tölvunni lengur hmmm hérna og líka atvinnurekendum mínum fyrir að gefa mér vinnu hjá sér og svo bara þú veist hérna öllum sem þekkja mig. Takk.