föstudagur, október 17, 2003

hmmmm... Ég var að fá skilaboð þess efnis að ég hefði átt skilið að fá líka Bredduna fyrir mesta bull-bloggið. Það var nú ósköp fallega sagt en ég er ekki sammála. Ég bulla nefnilega ekki mikið. Ég er að segja hlutina eins og þeir koma mér fyrir sjónir, af fullri alvöru og vil gjarnan vera tekin trúanlega. Þeir sem halda að þetta sé bara eitthvað gant og grín fyrir mér geta bara farið að lesa mbl.is eða eitthvað annað veftímarit sem byggir á kímni. Manni getur nú sárnað, ég segi ekki mikið meira.