mánudagur, nóvember 10, 2003

Ég verð að segja eitt í sambandi við tónleikana í gær. Þetta voru tónlistarnemar á aldrinum 16-25 ára frá ýmsum tónlistarskólum og allir voða klárir og duglegir að spila og syngja. Það var bara eitt sem truflaði mig (og fleiri) að ótrúlega margir, örugglega um helmingur, þeirra sem fram komu voru í hversdagsfötum. Gallabuxum, strigaskóm, íþróttagalla... semsagt bara hversdagsfötum. Ok, allt í lagi að hafa það gott og vera slakur og allt það en hvað varð um virðingu fyrir tónlistinni? Og skítt með virðingu fyrir tónlistinni, hvað með virðingu fyrir áheyrendum sem eru fyrst og síðast áhorfendur á svona samkomum? Ég er ekki að segja að allir þurfi að vera í rauðum silkikjólum en kannski allt í lagi að fara úr ég-er-heima-að-slaka-á-með-familíunni-fötunum og bregða sér í aðeins penni, allavega hrein föt... Ég bið ekki um meira.