mánudagur, ágúst 28, 2006

Jájá, nóg að gerast og nóg að segja frá. Hvar skal byrja?
Chippendales! Gaman að byrja á þeim! Okkur Guðbjörgu var semsagt boðið að bera þá beru menn augum og hef ég eiginlega ekki boðið þess bætur enn. Amk er ég enn með kvef... Það var nú meira um peningaplokk en fína drætti hjá þeim góðu mönnum svo ég varð eiginlega bara fyrir smá vonbrigðum. Þegar maður hefur séð einn fallegan mann klæða sig úr öllu nema nærbuxunum hefur maður eiginlega séð þá alla, allavega í bili. Greyin, ég fann eiginlega bara til með þeim, þeir voru ekkert að skemmta sér neitt konunglega þó greddubreddunum hafi þótt þetta hressandi. En ég meina það, nú get ég allavega xað við þetta á túdúlistanum.
Hvað gerðist svo? Já, ég fór bara óvart hringinn í kringum landið! Gaman að segja frá því. Planið var að skoða Suðurland og kannski kíkja austur á firði en þegar við lögðum af stað á þriðjudag var besta veðrið fyrir norðan svo við enduðum bara á því að fara hringinn. Hann var farinn nokkuð greiðlega, eða á eftirfarandi hátt:
Þriðjudagur: Keyrðum til Akureyrar og gistum í tjaldi í Vaglaskógi. Frost í tjaldinu um nóttina. Ekki sniðugt.
Miðvikudagur: Glampandi sól og blíða. Stutt keyrsla í Mývatnssveit, túristast þar og gist í svefnpokaplássi.
Fimmtudagur: Keyrðum austur og tjölduðum í Atlavík, búin að gleyma hrakningum frostnæturinnar. Borðuðum fínindismat hjá Svövu og ég fékk að knúsa Val litla. Klárlega hápunktur ferðarinnar! Það var bara frekar hlýtt í tjaldinu þá nótt.
Föstudagur: Leti fram eftir degi en keyrðum svo til Hafnar og gistum aftur í svefnpokaplássi.
Laugardagur: Skoðuðum Jökulsárlón og Skaftafell og ákváðum bara að keyra heim. Við erum greinilega of gömul og stirð í svona grín mikið meira en tvær nætur. Stoppuðum hjá Guðbjörgu á leiðinni heim.
Sunnudagur: Náttföt í notkun mestallan daginn og aldrei kalt.
Þannig var Sumarfríið 2006 í hnotskurn, bara helvíti fínt!
Nú gæti maður spurt hver var með mér í för og er gaman að segja frá því að ferðafélaginn er maðurinn sem þekktur er sem Wifebeaterinn... Ekki það að hann hafi nokkurn tíma lagt á mig hendur, bara til að hafa það á hreinu, en hann ber þó heilmikla ábyrgð á því að ég var í gifsi í að því er virtist mörg ár hér um daginn. En það er skemmst frá því að segja að hann fékk ekki leið á mér þrátt fyrir að fá bara nokkrar klósettpásur frá mér í 5 daga og þykir mér það bæði merkilegt og skemmtilegt. Og það sem meira er, fékk ég ekki leið á honum! Brill.
En í dag eru 6 dagar þar til ég held í söngvíking á ný svo það er eins gott að hrista af sér letilífið og fara að mixa það sem til þarf. Gaman væri að redda íbúð áður en ég fer en líkur á því minnka því miður óðfluga. En ég ætti að geta knúsað flesta, reddað peningamálum og jafnvel sungið eins og eina nótu eða tvær áður en ég kveð að sinni eftir skrýtið sumar, bæði gott skrýtið og vont skrýtið, en óumdeilanlega viðburðarríkt ;o)