Haldiði ekki bara að ég hafi hjólað í og úr vinnu í dag? Gamle mor keypti sér þetta líka svaðalega hjól um daginn og í morgun fékk ég þá snilldarhugmynd að fá það lánað. Það var semsagt áður en ég vissi að ég fengi vindinn í fangið, alveg sama í hvaða átt ég hjólaði... Ferðin gekk ótrúlega vel þrátt fyrir að ég hafi ekki hjólað síðan hjól voru þriggja gíra og bremsurnar fótstýrðar. Ég var svo heppin að rekast ekki á neinn sem ég þekki, thank God, þar sem ég var svo ótrúlega luraleg að það hálfa hefði verið hallærislegt. Sjáið þetta fyrir ykkur: Ljósir strigaskór, rauðar buxur, svartur vindjakki, svart buff undir fjólubláum, of litlum hjálmi á eldrauðu höfði konu. Sem kann ekki að bremsa. Hvernig stafar maður svalt? A-N-N-A baby! En ég hef sko hugfast komment gamals vinar: Haus sem er of vitlaus til að setja á sig hjálm er ekki þess virði að vernda! Svo fylgir því líka ákveðið frelsi að líta út eins og hálfviti, ég mæli alveg með því.
Annars er það helst títt að bölvans Björgúlfsfeðgar geta aldrei gert neitt rétt. Nú verð ég að hætta að blóta þeim og vera með þeim í liði það sem eftir er því þeir gáfu mér 200þúsund krónur í skólastyrk. Ansans vesen. En húrra!
Er að verða búin að vera hálfslöpp í langan tíma núna og Evilín komin með streptókokka svo nú er eins gott að fara vel með sig. Spurning um að hafa trefil fyrir vitunum á leiðinni á hjólinu. Bara svona til að bæta gráu oná svart. Og til að koma í veg fyrir að þekkjast. Ha!

<< Home