Mér er kalt!
Það er svo kalt á þessu landi að það hálfa væri ógeðslegt. Verst er að það er snjóflóðahætta í Bolungarvík en þangað er öll fjölskyldan mín að skunda í afmæli. Ég vil helst ekki vera veðurteppt þar því þá missi ég af fluginu mínu til Rottuborgar. Og það væri nú leiðinlegt. Og dýrt.
Annars er bara fínt að frétta úr Hlíð þrátt fyrir kuldann. Ég er búin að vera mikið á Flókagötunni að knúsa krílið hennar Dagnýjar, reyni að vera dugleg að æfa mig og svo er ég líka voða dugleg að kynna mér sjónvarpsdagskrána. Maður verður að vera með á nótunum sjáiði til. Uppáhalds íslenski þátturinn minn er líka þátturinn sem fer mest í taugarnar á mér, Heil og sæl. Þar er lítil og mjó nettmanísk kona að kenna fólki að borða grænmeti og drekka grænt te. Hún er ekkert sérstaklega skemmtileg, blessuð dúfan, en maðurinn hennar er bráðskemmtilegur! Hann er svona aðallega í því að elda bara en fær af og til að lýsa matreiðslunni á ensku með dönskum hreim og íslenskum lykilorðum. And then we take the grænmeti and dip it in the ólífuolía and the sítrónusafi... Mér finnst hann æði. Hins vegar finnst mér undarlegt að gera svona öfgaþátt þegar fólk er að farast úr offitu annars vegar og stressi hins vegar. Væri ekki nær að búa til þátt þar sem fólki er kennt að elda hollara en fara samt einhvern meðalveg í stað þess að þurfa að taka út allt hveiti, allan sykur, borða kíló af grænmeti á dag og eitthvað. Ég gæti kannski gert það þar sem ég bý ein og snýst bara í kringum míns eigins rassgat en mamma, pabbi, börn og bíll gætu átt örlítið erfiðara með það. Og í staðinn fyrir að koma með raunhæfar lausnir fyrir stressað fólk í 9-5 pakkanum veldur þetta bara enn meira samviskubiti yfir því að lifa ekki samkvæmt reglunum. Af því að kjarnafjölskyldan er nefnilega ekki með nógu mikinn móral fyrir.

<< Home