Heimsins besta afmæli
Síðasta kvöldið mitt í Rottuborg í bili var lagt undir afmælisfögnuð, svona í tilefni þess að ég verð 25 ára (já, ég ætla bara að verða 25 aftur takk) í páskafríinu. Gaman að segja frá því að um morguninn vann ég keppni sem haldin var í performance-class. Við áttum öll að koma með partý lagið okkar og ég var bara best! Það þótti mér sko ekki leiðinlegt. Í verðlaun fékk ég flösku af freyðandi hvítvíni. Það þótti mér heldur ekki leiðinlegt. En að kvöldinu... Ég byrjaði á því að fara út að borða með Bentínu, Matthew, Bylgju, Henning og uppáhaldsfólkinu mínu í Rottuborg; Ísak og Ingu Steinunni sem eru 6 og 9 ára. Við fengum fínasta mat og skemmtum okkur vel við að tala saman á táknmáli og teikna myndir. Eftir það fórum við á karókístað en þangað var ég búin að bjóða öllum afmælisgestunum. Það vildi ekki betur til en svo að karókígræjan var lokuð! Eftir smá naglanag fannst annar staður og ekki verri. Til að syngja í karókí þar þurfti reyndar að skrá sig í einhverskonar keppni, en við spáðum ekkert mikið í það og skráðum okkur flest án þess að hafa miklar áhyggjur. Svo þegar að keppnin hófst kom í ljós að hún átti sér stað uppi á sviði þar sem voru kamerur, ljós, reykvél og rautt tjald. Eftir að hafa sungið lag gaf 3 manna dómnefnd manni umsögn og svo fengu nokkrir að syngja aftur seinna um kvöldið. Við vorum þarna rúmlega 20 manns og það var gríðarleg stemmning í salnum. Ég fékk að syngja annað lag, enda dómnefndin ógurlega hrifin af mér, og eftir að því lauk bauð barinn upp á kampavín í tilefni afmælisins, ekki leiðinlegt... Að lokum var tilkynnt hverjir kæmust áfram í undanúrslit sem fara fram eftir 5 vikur. Sigurvegarinn fær svo 1500 pund í verðlaun (tæplega 200þús)!! Ekki slæmt. Það komust fjórir áfram í undanúrslitin og þeir voru allir í afmælisfagnaðnum mínum: Leah bestasta vinkonan mín, Whittaker sem er í óperuskólanum, Andy minn og ÉG!!! Bara fyndið! Ég hefði alveg átt að kaupa mér lottómiða þennan dag, ég var greinilega undir einhverri happastjörnu. En annars hefði ég ekkert þurft að komast áfram til að gera þetta kvöld alveg ótrúlega skemmtilegt. Ég horfði í kringum mig á allt þetta frábæra fólk sem ég hef kynnst þarna úti og fannst ég ótrúlega heppinn. Tár tár.
En nú er ég komin heim og hér er sko ekki síðra fólk í kringum mig. Spurning hvernig mér tekst að láta alvöru afmælið toppa fimmtudagskvöldið...

<< Home