Gleðifréttir dagsins ef ekki ársins eru þær að Skítamórall er að byrja aftur!!! Frábært, það er nefnilega ekki til nóg af hljómsveitum til að taka koverlög í Frostaskjóli. Alveg hallærislegt að vera með eitthvað voða kombakk á Írafárshátíðinni í gær, frekar mis. Mogginn sagði að 'uppi hefðu verið fótur og fit þegar hljómsveitin Skítamórall steig á svið eftir langt hlé.' Fótur og fit my ass, líklegast var nú aumingjans fólkið bara að reyna að komast út! Eða kannski ekki, ég gleymdi í smá stund hvernig meðal-verðlaunahátíðargesturinn var. Litlu gelgjurnar búnar að drekka kók í tonnavís síðastliðnar vikur til að geta kosið og búnar að fá vasapeningana fyrirfram til að komast á festivalið og sitja svo í sykurvímu með stjörnuglampa í augum þegar Goðin sjálf stíga á svið! Enda var víst mikið um yfirlið og panic-attacks í Borgarleikhúsinu í gær, Bráða-og slysadeild varð að mæta með sér unit fyrir utan Kringluna til að sinna þessum greyjum. En þær fengu að sjá Elítuna in action svo það var nú eflaust meira en vel þess virði.
fimmtudagur, febrúar 27, 2003
Previous Posts
- Skrýtin saga en alveg sönn Fyrir tveimur vikum síð...
- hey! ég fann annað naflakusk! Þitt blogg er samt s...
- Ég var svo reið þegar ég vaknaði í morgun að ég he...
- Ég söng í tveimur messum fyrir gamalt fólk á umönn...
- Til hamingju með daginn kæru kynsystur! Vonandi fe...
- Ég óska öllum sem eru að fara á árshátíð í kvöld (...
- Hörður Mar er hittir alveg naglann á höfuðið í þet...
- hmmm... Kannski eitthvað vit í því að efidrín sé b...
- Sjáið litla dúllufrænda minn!!! Hér er hann að bin...
- Ég er sko með minna en engar harðsperrur! Lorteþjá...

<< Home