mánudagur, febrúar 17, 2003

Talandi um dans þá gæti ég nú alveg tekið eurovisionfarann í smá kennslu því ég var nefnilega að kenna vínarvals í gær! Reyndar bara svona aðstoðarkennari en samt... Í óperettunni okkar er nefnilega mikið af völsum og fíneríi svo það er nauðsynlegt fyrir okkur að kunna á því tökin. Og ég er svo eftir mig í dag að ég var veik heima í staðinn fyrir að fara í vinnuna, með hita og eitthvað svona óskilgreint slen og þreytu. Ég fór nú samt í gymið (áður en ég fattaði að ég var veik), söngtíma (styttist í forpróf), píanótíma (fyrsti tíminn í 7 ár), tónlistarsögu (próf) og kóræfingu (fyrsta skiptið). Nóg að gera sko þó maður sé lasinn. Ég var nefnilega að byrja í óperukórnum. Skellti mér í söngprufu á föstudaginn í skítugum buxum og götóttum sokkum og fæ að vera með í War Raquiem eftir Britten, flutt í maí með Sinfó. Ótrúlega flott verk. Nú er ég að svala netfíkninni eftir langa bið og hlusta á fyrsta diskinn sem var brenndur í Mávahlíðinni. Hann heitir Annie's Gangsta Remix '03 og inniheldur karlremburapp og tjútttónlist af bestu gerð. Takk litla mín :-*
Var að taka eitthvað próf sem Ólöf sendi mér og í ljós kom að ég er ástfangin af Jóhanni og Ólöf er besta vinkona mín. Það getur ekki verið! Jóhann er frændi minn og ég hitti Ólöfu bara once in a fortnight! Bull og vitleysa.
Nú get ég farið fullnægð að sofa þar sem ég er búin að tékka á öllu merkilegu á netinu (sjálfsblekking er vald) og býð góða nótt.
ps. Það er einhver misskilningur í gangi! Ég á afmæli fyrsta apríl!