laugardagur, júní 07, 2003

Lokamæling í BH í dag og ég er bara nokkuð sátt við árangurinn. Betur má ef duga skal en þetta er fínasta byrjun, ef byrjun má kalla. Fór í síðasta söngtímann og fékk staðfestingu á því að ég er í fínu söngformi og að þetta eigi eftir að ganga vel :-) Fó svo og liðsmannaðist með Jölla mínum, það var voða gaman þó ég hafi reyndar fengið óumbeðna sturtu...
Pakk á morgun, held ég þurfi tvær stórar ferðatöskur lágmark því til að vera með átfitt fyrir öll tækifæri þarf ég næstum að taka með mér allan fataskápinn minn. Þarf sko ekkert BH til að halda mér í formi, dröslast bara með allan minn farangur og drasl um Evrópu í lestum og verð ungfrú Fitness punktur komma strik þegar ég kem heim.