Framdi stranglega bannaða athöfn áðan... Fór í ljós!!! Það er auðvitað stórhættulegt og heimskulegt og allt það og ég veit að maður á ekki að gera þannig en það er bara svoooo gott að fá smá hita í bakvöðvana, sérstaklega eftir langan dag. Anyways þá rak ég augun í að á hurðinni á ljósahúsinu stendur: Neyðarsími bladibla. Og nú er spurningin... Neyðarsími? Af hverju þarf neyðarsíma utaná ljósahúsið? Væri ekki nær að hafa það inní klefunum ef einhver læstist inni eða eitthvað? Nú eða festist í ljósbekk eins og kom fyrir mig fyrir 10 árum eða svo? (Það og fleiri atvik í þeim dúr munu öll koma fram í Endalaus óheppni Goggs bindi 1 sem koma mun út fyrir næstu jól). En fyrir utan? Hvaða neyðaratvik gerist fyrir utan ljósahúsið? Nema kannski að Arnar Grant mætti tveim vikum fyrir showtime og húsið væri lokað... Getur hann þá hringt og fengið gellurnar til að opna húsið? Ladies, we have a tanning-emergency!!!
þriðjudagur, desember 28, 2004
Previous Posts
- Gaman að lesa desember 2003 í lífi Goggs og gott a...
- Er verið að gantast í mér? Var dugleg í morgun og ...
- Gleðileg jól yndin mín nær og fjær!!! Ég eiginleg...
- Skemmtileg helgi að baki og vinnuvika tekin við. V...
- Talaði við DHH í gær og hún hló dátt að ferðasögun...
- Nú get ég loksins andað léttar! Búin að tæma ferða...
- Eins og ég lofaði... BANNAÐ MÖMMU OG BÖRNUM UNDIR ...
- Finalmente sono alla mia casa!!! Þvílíkur dagur í...
- Þar sem ég hafði ótrúlega mikinn tíma í London ger...
- Jæja þá er það búið!!! Eftir netta upphitun og æfi...

<< Home