Þetta er allt í lagi! Ég er ekki dáin!
Reyndar að deyja úr leiðindum hér á Stykkishólmi, en það er mikil framför frá því að vera að deyja úr sársauka á Stykkishólmi, eins og ég var í síðustu viku. Búin að fara aldeilis mikið í sundleikfimi og gera æfingar og í sónar og allskyns prufur og test. Og já! Líka í 10 stykki sprautur í hryggjarliðina. Það var alveg laust við að vera þægilegt skal ég ykkur segja. Ég ætlaði að taka þetta á töffaranum sko, en grét svo bara eins og versta barn. En það er búið og ég þarf ekki að fá svona aftur fyrr en á næsta ári. Þá verð ég búin að gleyma því hvað þetta er vont. Hér er leiðindaveður og maður leggur líf sitt að veði þegar maður arkar (staulast) í sundið klukkan hálf átta á morgnana, í kolniðamyrkri og fljúgandi hálku. Ég vona bara að ég komist í bæinn á föstudaginn, það er spáð einhverjum leiðindum.
Ég er nefnilega að fara í þriðja söngtímann til breskrar söngkonu sem er á landinu fram á laugardag og það er nú meira ævintýrið. Ég botna bara ekkert í þessum söng stundum! Þegar maður heldur að maður sé kominn með þetta kemur bara eitthvað allt annað og maður þarf að byrja frá grunni! Stundum held ég að verði aldrei söngkona, svei mér þá.
Það er búið að banna mér að vinna í Strýtuseli um jólin, þar sem átök við stóra stráka þykja ekki vænleg til bakárangurs. Ég er að spá í að sækja um starf með lítil kríli, þó svo að læknarnir vilji að ég vinni ekki neitt. Þá held ég nú fyrst að ég deyji úr leiðindum! Sjáum til... ég kem allavega í bæinn um helgina og er verulega félagslega svelt, ef einhver skyldi vilja svala þorsta mínum ;o)

<< Home