fimmtudagur, júlí 03, 2003

Á ferðalaginu svaf ég í 7 mismundandi rúmum á 7 mismunandi stöðum.
Topp 5 Lélegustu rúmin
1. Rúmið hjá Ingibjörgu frænku í Köben. Mjög hipp og hannað eftir ströngum reglum en ömurlegt.
2. Rúmið hjá Thorge stóra bróður í Wapelfeld. Svefnsófi sem var sem rúm skiptur í 2x 60cm dýnur með gat á milli. Vont rúm.
3. Rúmið í tölvuherbergi Arnars og Söskju í Lokeren. Þrátt fyrir góðan félagsskap undir sænginni stóðst rúmið enga gæðastaðla.
4. Rúmið í Smörum ovre. Þrátt fyrir að hafa sofið á þessari dýnu sem dulbýst sem rúm í 10 mánuði forðum daga gerir það hana ekki að gæðarúmi.
5. Rúmið á hótel Mercedes í Hamborg. Lítið og lágt og tilhugsunin um allar hórurnar sem selt hafa æru sína í því hjálpaði ekki. Skamm.