mánudagur, júlí 28, 2003

Helgin var ósköp róleg eftir viðburðarríkan föstudag. Svaf allan laugardaginn og byrjaði því sunnudaginn með trompi og mætti í combat kl.10:20. Var ein fyrstu 5 mínúturnar með kennaranum og var mjög fegin þegar fleiri kellur mættu, var ekki alveg að lítast nógu vel á einkatíma...
Tók því svo bara rólega, kíkti í heimsókn í Hafnarfjörðinn og horfði á stórskemmtilegt golfmót í sjónvarpinu, sannarlega sjónvarpsefni sem ég mun leggja mig fram um að geta horft á í framtíðinni. Kláraði að endurlesa HP4 í gærkvöldi og hún er alveg ógnvekjandi í endann svo það var ekkert gaman að liggja ein í dimmu herbergi og reyna að hætta að hugsa um 'þann sem ekki má minnast á' og reyna að sofna. Getur verið að ég sé myrkfælin? 23 ára? Er það ekki eitthvað skrýtið? Kannski í lagi eftir að hafa lesið mjög skelfilega barnabók.... Ekki? O well.
Ekkert merkilegt sem gerðist hjá mér í dag nema það að ég fór 4 sinnum í sturtu! Og nei, ég er ekki að þróa með mér einhverja þvottaáráttu og ég er heldur ekki komin með sýklafóbíu heldur á þetta sér mjög eðlilegar skýringar. Fyrsta sturtan var í morgun, fyrir vinnu. Önnur sturtan var áður en ég fór ofaní Laugardalslaugina, en þangað fór ég einmitt í vinnunni. Þriðja sturtan augljóslega eftir sundferðina og sú fjórða eftir combattíma áðan. Brúnkan mín (það var smá brúnka...) er alveg farin núna, sniff sniff, en ég er allavega hrein - það getur enginn haldið öðru fram!
Að lokum langar mig að biðja vinkonur mínar sem eru fluttar tímabundið eða endanlega út á land (þið vitið hverjar þið eruð!) og þið eruð nota bene 3!!! að koma aftur. Það er leiðinlegt án ykkar. Ég sakna ykkar helling.