laugardagur, júlí 26, 2003

Útlitið eða lífið???
Það var keyrt aftan á Ólínu með okkur mömmu innanborðs í gærkveldi. Ansi kunnugleg staða, en árið 1995 var einmitt keyrt aftan á okkur mæðgur með slæmum afleiðingum fyrir okkur báðar. Gaman að segja frá því. En áreksturinn í gær var heldur skondnari: Við vorum stopp á ljósum þegar mamma segir 'Þvílíkur töffari fyrir aftan okkur, með sólgleraugu og allt!' Ég kíki í pæjuspegilinn farþegamegin og hlæ góðlátlega að töffara dauðans og sé að hann er líka að skoða sjálfan sig. Hann er svo mikið að skoða sig í baksýnisspeglinum að hann þarf að lyfta sér aðeins upp í sætinu og við það ýtir hann á bensínið. Ég sé að hann nálgast mig allt í einu í speglinum og það var alveg rétt. Hann var svo mikið að skoða sig í speglinum að hann úps! keyrði á Ólínuna okkar. Okkur mömmu brá nú minna en hefði getað verið þar sem við sáum hann nálgast... og ég þurfti að bíta fast í tunguna til að stöðva eitraðar athugasemdir þegar ég steig út úr bílnum. Vildi helst ekki koma upp um mig. En bílarnir eru óskemmdir og farþegarnir líka svo þetta var nú allt í lagi. Lærdómurinn sem draga má af þessari litlu sögu er samt: Spegill, spegill herm þú mér; hvernig get ég hætt að dást að sjálfum mér???