Ég fór á fótboltaleik á þriðjudagskvöldið, fh-kr. Ekki mjög merkilegt en það varð til þess að ég fór að hugsa mikið um það hvað veldur því að einhver ákveður að vera línuvörður. Aumingjans kallinn skrökklaðist fram og til baka á línunni beint fyrir framan stúkuna og allir eitthvað að öskra á hann. 'Hvað ertu búinn með marga Ginnic í dag?' 'Farðu heim línuvörður' 'Horfðu á leikinn' og uppáhaldið mitt: 'Þú skalt sko ekki dirfast að koma í Hafnafjörð' :-)
Líka fyndið þegar fólk er að öskra á dómarann eitthvað eins og 'Dómari! Þetta var aukaspyrna!' Eins og hann bara eitthvað 'ójá ok það er líklegast rétt hjá þér', stoppi leikinn og breyti. Skondin íþróttagrein stuðningsmennska, ekki fyrir alla.

<< Home