fimmtudagur, júlí 03, 2003

Innan fer?alagsins f?r ég m?rg styttri fer?al?g. ?au voru misskemmtileg.
Topp 5 verstu fer?al?gin
1. Bílferðin frá Berlín til Lokeren 13.6. Langt heitt sveitt þröngt ógeðslegt
2. Lestarferðin frá Güntzelstrasse til Kudamm í Berlin 25.6. Var með mígreni og það var of heitt og of mikið ljós og of mikill hávaði. Ömurlegt.
3. Lestarferðin frá Köben til Hamborg 10.6. Fyrir utan það að fara afturábak (eins og ég gerði nota bene í öllum löngu lestarferðunum) var vagninn fullur af 16 ára þýskum unglingum. Of mikið af hormónum, hárgeli og 'super geil' upphrópunum.
4. Lestarferðin frá Hamborg til Köben 2.7. Hollenskan kellingar við hliðina á mér sem töluðu non stop og voru greinilega búnar að drekka mikið vatn.
5. Bílferðin frá Wapelfeld til Hamborgar 29.6. Ég segi ekki margt þegar ég er stressuð og bróðir minn segir aldrei orð hvort eð er. Þögðum í 20 mín samfleytt þar til ég spurði: Eru margar slöngur í Þýskalandi? Brill.