mánudagur, júlí 07, 2003

Kom í ljós að ég átti ekki vinnu vísa. Var ég sátt? Nei. Blev jeg tossed? Já. Halló! Segja mér það þá áður en ég fór, ekki láta mig koma heim í byrjun júlí og eitthvað: Nei þú átt ekki vinnu hér. Við réðum þig en við hættum við. Crrrrrap. En niðurstaðan varð sú að ég byrja á miðvikudaginn. Nú langar mig reyndar ekki mjög mikið til að vinna þarna (og þau langar örugglega jafn lítið til að fá mig í vinnu) en tveir mánuðir, ég hlýt að þrauka það. Fínt að fá afslöppunardaga núna, ég er nefnilega ekki alveg upp á mitt besta í dag. Sérstaklega ekki í Baðhúsinu í morgun. Aumingi.is, gat ekki neitt. Eins gott að vera snögg að smella mér í form aftur, svona áður en litli kaldi prinsinn kemur aftur heim og ég þarf að fara að hlaupa.