föstudagur, júlí 04, 2003

Ég er snillingur! Ég gat lagað bloggið mitt! Svo nú geta allir lesið ferðasöguna án þess að þurfa að giska á hvaða íslenski stafur leynist á bak við ?merkið. Og áður en þið farið að skoða tímasetningu síðasta bloggs og velta því fyrir ykkur hvort ég hafi actually verið 5 tíma að finna út úr þessu, þá get ég sagt ykkur það strax að svarið er nei, ég fór og gerði 100 hluti og kom svo aftur á netið. Snjallt, ekki satt? Meðal annars tók ég upp úr töskunni, það var að æra mig að hafa verið heima í næstum tvo daga en vera ekki ennþá búin að ganga frá öllu. Nú er allt komið í skápinn eða þvottavélina, eftir því sem þörf var á, svo ég get andað léttar og hlakkað til að fá mér smá öl í kok og smá dansfiðring í tær í kvöld. Honey, I'm HOME !!!!!!!!!!