sunnudagur, júlí 06, 2003

Fór á tjútt á föstudaginn með Ólöfu og Kamillu. Það var ágætt. Fórum á Hverfis, aldrei slíku vant, og þar var ekki svo mjög margt fólk. Kannski af því að allir eru í útilegu??? Plötusnúðurinn hefði betur farið í útilegu líka, hann var ekki að gera nógu góða hluti. Til allrar hamingju hafði ég nóg af fólki að tala við, Kanana Mike og Adam og svo hitti ég minn góða gamla vin Ingimar! Hafði ekki hitt hann í tvö ár svo það var alveg kominn tími á spjall. Þar sem sumir voru ekki alveg á því að ég mætti setja upp reunion á dansigólfinu ætlum við að spjallast betur í vikunni. Gaman gaman.
Í gær fórum við skötuhjón á Austur Indiafjelagið að borða. Vá hvað það er góður matur þar... Ótrúlegt. Snilldarkvöld í alla staði. Í dag er svo letidagur, hvíld fyrir vinnuna á morgun. Vonandi hef ég ennþá vinnu, ég veit það ekki, ég ætla bara að mæta í fyrramálið.