sunnudagur, janúar 16, 2005

Ég fór á mjög athyglisvert fyllitjútt í gær. Byrjaði í afmæli hjá söngskvísunni Dísu og endaði á Hressó með Gunnhildi! Já, ég segi það og skrifa: Gunnhildi Karlsdóttur, sem ég hef ekki farið á tjúttið með síðan á því herrans ári 2000 ef mér telst rétt til. Það var mjög gaman og ég vil þakka gaurnum sem drakk bjórinn minn, útlendingunum í rauðu skyrtunum og TDB gæjanum kærlega fyrir að gera kvöldið enn skemmtilegra ;-)
Eini heili frídagurinn sl. og nk.13 daga fór sem sagt í þynnku og kvef, tiltekt, gjafainnpökkun og sjónvarpsgláp. En heill dagur á náttfötunum er reyndar alltaf góður. Og ekki bara hvaða dagur sem er, heldur...
Afmælisdagurinn hans Grétars!!!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ SÆTI MINN !!!

þú færð 100 knús í anda *