laugardagur, janúar 08, 2005

Mér finnst orðið ótrúlega algengt að ungir foreldrar í dag segi mikið ástin mín við börnin sín. Kannski hefur það alltaf verið þannig og ég er bara að taka eftir því núna en mér finnst voða mikið 'ekki gera þetta ástin mín' og 'réttu pabba poka ástin mín' í loftinu þessa dagana. Ég er sjálf ekki mikil ástinmínkona. Ég fer mjög sparlega með þessi orð og vil helst bara nota þau þegar ég meina þau af öllu hjarta. Allt annað mál með elskan mín en um þessar mundir á ég einmitt ótrúlega margar elskur ;-) Um ævina hef ég bara sagt ástin mín við tvær manneskjur... og það voru ekki börn. Ég fer líka mjög sparlega með stóru orðin þrjú og get eiginlega talið skiptin sem ég hef sagt þau. Maður þarf að meina þau 100% finnst mér. Fjölskyldan mín er líka ekkert mikið í svoleiðis tali, ekkert músímú væmið hjal neitt. Við segjum hverju öðru að okkur þyki vænt hverju um annað svona á stórhátíðardögum og kannski þegar við höfum rifist en ég elska þig er ekki eitthvað sem heyrist. Það þýðir þó ekki að við elskum ekki hvert annað, don't get me wrong, við erum bara lítið að tjá okkur um það. Hvað þá opinberlega. Þetta er greinilega mjög misjafnt og ótrúlega fyndið hvað fólk leggur mismikla merkingu í orð. Sem eru eftir allt saman bara orð, við megum ekki gleyma því...