sunnudagur, janúar 02, 2005

Nýtt ár gengið í garð! Árið þar sem ég verð 25 og fer í netta aldurskrísu sem gleymist í massa-afmælispartýinu mínu sem verður það besta í manna minnum, syng my ass off, bæti litlu kríli (amk einu) við í vinkvennahópinn, flyt að heiman, fer í framhaldsnám erlendis og verð alveg yfirþyrmilega hamingjusöm allt árið... Vonandi :-)
Árin mættust annars á mjög friðsamlegan hátt hjá mér. Fékk snilldargóðan mömmumat og horfði á ekki svo snilldargott áramótaskaup áður en ég átti rómantískt miðnætti við hesthúsin í Kópavogi... Fór svo í Fjallalind þar sem ég drakk sprite og steig í hundapiss áður en við kíktum niður í bæ. Eftir stutt stopp á Sólon ákvað ég að það væri bara eitt í stöðunni: Heim undir sæng takk! Ætlaði að bæta mér það upp í gær en nennti því svo engan veginn. Það var kalt og ég var þreytt og hafði bara margt skemmtilegra að gera en að væflast í miðbænum!
Söngur okkar Sævars gekk bara vel þrátt fyrir pínulítið hikst en það tilheyrir nú bara; ekkert gaman að þessu nema eitthvað smá komi uppá. Við vorum klöppuð upp tvisvar en áttum bara eitt aukalag, frekar vandræðalegt... en alltaf gaman að vera klappaður upp ;-)
Svo er þetta bara búið! Jólin og áramótin komin og farin og við tekur ný önn sem teygir sig alla leið fram í maí. Magnað.