miðvikudagur, janúar 19, 2005

Ég hata kvef!!! Það er glötuð uppfinning. Ef maður ætlar að búa til veikindi sem leggjast á fólk þannig að því líður bölvanlega, en samt ekki nógu illa til að það hafi samvisku til að liggja heima í rúminu, er lágmark að búa til lækningu.
Ég vil vera laus við kvefið fyrir helgi takk! Ég vil líka fá frí í vinnunni takk! Svo vil ég fá gott veður! Og 50 þúsund krónur til eigin afnota en ekki af eigin bankareikningi!