Nei, nei! Hvað er að sjá?? Íslenskir stafir! Jei!
Ég er semsagt komin heim í Heiðardalinn og finnst það bara ansi hreint mikið ágætt. Rétt náði að knúsa mömmu til hamingju með afmælið fyrir miðnætti á föstudaginn og svo var svaka veisla heima á laugardaginn. Fínt að hitta bara flesta svona í einu lagi, hentar mér ágætlega. Við systur fórum svo á venju samkvæmt skrautlegt djamm um kvöldið og brugðum út af vananum með því að fara bæði á Sólon og Óliver(!) Myndir af okkur má finna hér þar sem við vorum vinsælar af ljósmyndara hússins (hann var vafalaust feginn að sjá ný andlit...). Gaman að því. Síðan þá er ég bara búin að vera mikið róleg. Hitti Kvennóstelpur í gær og er búin að syngja slatta, en ég er búin að fá lykil að söngskólanum svo ég get verið þar að læra þessi ósköp sem ég þarf að komast yfir í fríinu. Ég ákvað að vinna ekki í Vesturhlíð um jólin, ekki auðveld ákvörðun en ég held að hún hafi verið gáfuleg, nema kannski fyrir budduna... Ég fer til Jökuls mín á eftir og hlakka ekkert smá til að sjá hann. Sagan segir að hann hafi stækkað mikið og ég er spennt að sjá hvort hann þekki mig. Annars er bara jolestemmning i huset, ég er búin að kaupa allar gjafir svo nú er bara að pakka þeim inn og senda jólakortin og þá mega herlegheitin bresta á! Ég er ekkert smá fegin að þurfa hvorki að fara í Kringluna né Smáralindina, enda voru þeir staðir ekki á listanum yfir staði sem ég sakna þegar ég bý í útlöndum. Svo fer að styttast í annál held ég bara, svei mér þá!!!

<< Home