Lán í óláni í London
Komst ekki áfram í aðra umferð í 2 skólum af þremur, en komst áfram í síðasta áheyrnarprófinu. Þegar þar var komið sögu var stemmningin orðin frekar slæm en kannski var það fuck it attitudið sem fleytti mér áfram... veit ekki. Seinni umferðin var svo seint að deginum að ég, í heimsku minni, missti af flugvélinni heim! Það hefði verið minnsta mál að breyta tímanum en ég misreiknaði ferðatímann innan London svona líka hressilega. Það að sofa í annarra manna rúmi og allt stressið og hlaupin fór eitthvað öfugt í bakið mitt svo þegar ég kom á flugvöllinn gat ég ekki lengur gengið upprétt, heldur hálfbeygð eins og neanderthalsmaður. Það var þess vegna sem ég ákvað að borga morðfjár fyrir flugmiða til að komast í næstu vél heim þetta kvöld. Þegar ég reyndi að setja töskuna mína á vigtina sagði pilturinn við afgreiðsluborðið: Á ég ekki að fá fyrir þig hjólastól svo þú komist út í vél? Ég hélt nú síður og sagði honum pent að það væri óþarfi. Hann ákvað samt að kalla í talstöð og biðja um stól. Þegar ég sagði aftur nei takk, örlítið hærra, sagði hann: En þú getur ekki labbað! Þegar þarna var komið sögu helltust svefnlausar nætur, vonbrigði með áheyrninar, bakverkur og það að ég borgaði milljónir fyrir að komast heim en var samt bara að fara heim til Rottuborgar, ekki alvöru heim, yfir mig og ég hvæsti á aumingjans manngarminn: Frankly, I don´t see how that´s any of your bloomin´business! Svo stalaðist ég í burtu á hraða snigilsins og hélt mér í borð og stóla til að geta labbað. Grand exit indeed, þetta ætti að kenna honum! Svona getur maður verið klikk... (best að taka það fram að ég er ekki vön að tala eins Eliza Dolittle, veit ekki hvaðan það kom). En ég komst heim og get víst verið nokkuð sátt við að komast áfram í College skilst mér. Þetta er samt ekki alveg eins og þetta átti að fara svo það er hellings svekk.
Ach well, onwards and upwards, Kopf hoch og chin up! Nú eru bara eftir litlar sætar senur, kaupa jólagjafir og svo bara fara heim!! Þar ætla ég að SOFA, baka, leika í snjó og jólast og jólast. Svo stefnir allt í sambúð eftir jól, svei mér þá! Meira um það síðar...

<< Home