Ég er hýr og ég er rjóð, Jón er kominn heim...
Nei, þetta er ekki ég að koma út úr skápnum. Þetta er ég komin heim til Íslands! Hér verð ég í heila tíu daga, og þó ég hafi fyrst og fremst komið til að vera við jarðarför ætla ég líka að vinna hressilega. Væri synd að reyna ekki að græða smá pening fyrst ég er hér á annað borð.
Á meðan ég er hér fær Sæberg að vera einn í íbúðinni okkar, og þar af leiðandi á klóinu. Hann fékk lykla og leiðbeiningar áðan en var bara frekar súrlegur blessaður, ég fékk sko engin risafaðmlög fyrir að finna honum hlýlegt heimili! Laun heimsins ERU vanþakklæti, það er ljóst.
En ég var komin í svaka sving í Rottuborg, söng glimrandi fína tónleika í Edinborg sl fimmtudag og bara himinlifandi með lífið. Þetta verður stutt pása á söngstuðinu hér heima, en ég hef ákveðið að hafna tilboði um mánaðarlega vinnu hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Maður gerir ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn sjáiði til. Þannig að ég reyni bara að finna mér vinnu á pöbb eða eitthvað í Rottuborg þegar ég kem út aftur, nú eða bara í Ann Summers, ég veit að vinkonur mínar myndu fíla það! Knús

<< Home