Og ryksugan á gólfinu, í dag skal húsið skreytt...
En ég ætla ekki að ryksuga! Ó nei, það er bannað í bili! Eða reyndar ekki bannað, en það tæki mig svona 2 klukkutíma að ryksuga þennan íbúðarling, svo ég held það sé betra að ég nýti tímann í eitthvað annað, til dæmis að blogga... Það er auðvitað ekki hægt að halda jól án þess að jólabloggið sé komið á sinn stað!
Allir pakkar tilbúnir og næstum allir komnir á sinn stað og búin að baka eina smákökusort. Veit ekki hvort ég læt það duga, gæti farið svo. Dagurinn í dag fer í tiltektir og skreytingar og svo langar mig voða mikið að kíkja í bæinn í kvöld. Vill einhver koma með? Fólk hættir kannski við þegar fréttist að ég ætla að kíkja á óperukaríókí í ÍÓ, en engar áhyggjur -ég ætla ekki að syngja sjálf!
Er búin að vera voða sósíal undanfarna daga og koma þar lögfræðingar mikið við sögu. Fór á Oratoríu Laganema í fyrrakvöld og sá prófkvíða og stress líða úr fólki oní bjór og fór svo í nett samkvæmi í gær þar sem voru tveir lögfræðingar. Við spiluðum Partý og co spilið og ég var næstum rekin út þegar ég spurði spurningar á vitlausan hátt! Það hlýtur að liggja ljóst fyrir hér að fyrirmælin verða að vera skýr! Drakk aðeins of mikið jólaglögg, enda með endæmum athyglisverður dykkur, en hagaði mér vel. Sagði ekki nema eina Allsberísundi sögu, ótrúlegt en satt!!
Það er svo fyndið hvað vinir mínir hér eru ólíkir vinum mínum í Rottuborg. Þar er fólk bara að spá í framann og eigið óöryggi, með hausinn ansi hátt í eigins rassi stundum, á meðan hér er fólk meira svona að búa til annað fólk og olíubera parket. Ótrúlega gaman að eiga svona fjölbreyttan vinahóp!
Elsku vinir!!
GLEÐILEG JÓL!!! (mæli með að hafa hljóðið á)
Hafið það yndislegt
xxxxx

<< Home