Ég horfði á svakalega mynd í fyrradag! Hún var um lesbískt par sem eignast barn þannig að önnur þeirra fer í tæknifrjóvgun. Þegar barnið er fætt fær sú sem gekk með það helluroða (minnir mig) og verður veikari og veikari. Að lokum deyr hún og þá er hin ein eftir með barnið. Þá koma foreldrar þeirrar sem dó og taka af henni barnið og leyfa henni aldrei að hitta það. Hún áfrýjar dómnum og reynir allt til að fá barnið aftur en er þvílíkt ein því foreldrar hennar eru búnir að afneita henni útaf samkynhneigðinni. Í endann fer allt vel og hún nær barninu af vondu tengdaforeldrunum en vá hvað ég var búin að grenja mikið þá! Mæli alveg með þessarri mynd fyrir þá sem eiga erfitt með að fella tár (þó svo að ég sé alveg búin að skemma myndina með því að segja frá öllu plottinu).
föstudagur, september 03, 2004
Previous Posts
- Þunn? Ég? Neinei bara smá... Í gær var lokahóf sum...
- Blessuð blíðan bara... ekki slæmt að vera í fríi n...
- Annars gekk föstudagurinn þrettándi bara stórslysa...
- Í dag var fyrsti frídagurinn minn. Það er að segja...
- Það er sko bara útlenzkt veður í Reykjavík í dag! ...
- I feel pretty, oh so pretty! I feel pretty and wit...
- Ég gleymdi að segja að ég er RÍK!!! Fékk heilar 40...
- Og þá er Verslunarmannahelginni lokið. Það er nú á...
- Við stelpur erum nú svolítið sorglegar stundum. Ég...
- Haldiði ekki að blauti leiðbeinandinn sé búinn að ...

<< Home