I love the nightlife...
Ég var eitthvað hálf tuskuleg í dag svo ég hætti við kvöldplanið sem fólst í bjórdrykkju og reykjarmekki. Þess í stað er ég bara heima. Það er ekkert í sjónvarpinu svo ég lagðist í símavændi og til að sitja ekki aðgerðalaus á meðan ákvað ég að þurrka af og breyta myndunum á veggjunum. Klukkan hálf ellefu dró svo til tíðinda því þá ákvað ég að láta undan löngun minni og ryksuga! Herbergið mitt svalaði ekki þörfinni svo ég tók ganginn, baðið og eldhúsið líka. Klukkan 22:30 á laugardagskvöldi gott fólk! Gekk svo frá ryksugunni og skellti mér í tölvuna. Held ég breyti nafninu mínu í partýdýrið.

<< Home