föstudagur, janúar 21, 2005

Lifestyle of the rich and the famous

Eftir vinnu í dag er ég að fara í Laugar Spa, believe it or not! Þar verður farið í nudd og gufuböð og foss og fuglasöngvaherbergi og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er reyndar ekkert yfir mig spennt fyrir þessum 7 gufuböðum þar sem ég er gjörn á að falla í yfirlið á slíkum stöðum... En það hljóta þá að vera þarna einhverjir hlírar sem geta lagt mig í læsta hliðarlegu. Svo er stefnan að borða þar einhverjar gulrætur og hnetur; þetta verður örugglega æði! Gef ykkur skýrslu síðar ;-)