Goggsárið 2005 í hnotskurn
Ársins 2005 verður minnst í endurminningum mínum fyrir margar sakir. Merkilegt ár og gífurlega viðburðarríkt. Ég flutti ekki bara til útlanda heldur fór ég að búa ein í fyrsta skipti á ævinni og lfia drauminn minn. Frábært ár með nokkrum leiðindablettum en eins og alltaf eru ákveðnir atburðir og aðilar sem standa uppúr. Versogú!
Orðatiltæki ársins
Blessuð dúfan stendur enn fyrir sínu en Dreptu mig ekki kemur sterkt inn svona í bláendann. Thank you Miss Tryggvadóttir!
Þema ársins
Þema ársins virðist vera að ég falli fyrir strákum sem flytja langt í burtu frá mér. Næst vil ég mjög gjarnan verða skotin í einhverjum sem heldur sig í 5 kílómetra radíus, max. Er það til of mikils ætlast?
Nekt ársins
Berir leggir mínir á gatnamótum í Glasgow koma sterkir en Konudagsgjöfin sér þá og hækkar um þrjá þar sem það voru margir allsberir kallar í karlasturtum Sundhallarinnar daginn þann.
Svekk ársins
Það að vera tvisvar á Austfjörðunum en geta ekki heimsótt Svövu mína var frekar mikið svekk. Sérstaklega í ljósi þess að ég er líklegast ekkert á leiðinni þangað aftur á næstunni.
Breakthrough ársins
Að losna við gleraugu og linsur fyrir fullt og allt. Ekkert nema snilld. MAGNAÐ!!
Hözl ársins
Ljóðið á post-it miðanum sem mér var sendur yfir barinn var ansi hreint magnað:
Þannig læðist ástin að
erótíkin eða hvað?
Valsstúlka nefndu stund og stað
stefnumót til að gera það!
Eldheitur sporðdreki
(símanúmer)
Deit ársins
Við hittumst á netkaffihúsi þar sem hann hjálpaði mér með bilaða tölvu. Átta tímum síðar kvöddumst við fyrir utan húsið mitt. Ég söng non-stop í marga daga á eftir þar sem ég sat á bleika skýinu mínu lalalalaaa...
Fífl ársins
Heitir Marilyn J Smith. Söngkennarinn minn undanfarna mánuði.
Ég verð þó að taka fram að keppnin í þessum flokki var óvenju hörð þetta árið.
Setning ársins
'En Anna. Nú ert þú með þrjú göt.'
Ég læt ímyndunarafl ykkar um að setja þessa setningu í samhengi híhíhí.
Hreimur ársins
Er minn! Einhverra hluta vegna eru skosk orð farin að laumast inn í mál mitt á ögurstundum og fólk virðist halda að ég sé írsk... Veit ekki alveg hvað málið er með það en það er bara gaman að því.
(Ég vil þó taka það fram að ég er að grínast í talhólfskveðjunni minni...)
Man ekki meir í bili
Knús!

<< Home