mánudagur, janúar 02, 2006

Nokkrir áramótapunktar

- Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll gömul og góð sem á undan komu!
- Það margborgar sig að vera edrú á gamlárskvöld.
- Það er ljótt að leggja fólk í einelti í drykkjuleikjum.
- Sérstaklega fólk sem er edrú og akandi!
- Það er til leikur sem gengur út á það að sá sem er síðastur að ýta á rauðan takka fær rafstuð í lófann. Hvað er málið með það? Ég held því fram að þessi ´leikur´hafi verið fundinn upp af fangavörðum á deathrow í Texas sem höfðu ekkert að gera í vinnunni.
- Eru útlitskomplexar og óöryggi einhverjar af ástæðum þess að fólk leggur pólitík fyrir sig?
- Hvenær ætla stelpur að hætta að nudda sér utan í hvorri annarri og kyssast og eitthvað til að reyna að ganga í augun á strákum. Þetta er löngu hætt að vera þreytt og orðið fjörgamalt.
- Brad Pitt ætlar að kæra ljósmyndara sem tók myndir af honum þar sem hann lá allsber í sólbaði. Ef maður er Brad Pitt, sem er umkringdum papparazzíum allan sólarhringinn, leggst maður þá á typpinu út í sólbað?
- Það er fáránlegt til þess að hugsa að eftir viku verði ég komin aftur til Glasgow að undirbúa áheyrnarpróf og óperufrumsýningu.
- Megi árið 2006 verða ykkur öllum gleðiríkt og megi allir ykkar draumar rætast.